Spennandi kosning og viðburðarík norðurferð
Gærdagurinn: Skrapp í Skagafjörðinn, fór að jarðarför, hitti fullt af ættingjum, borðaði fullt af bakkelsi, lenti í útafkeyrslu í Víðidalnum á heimleiðinni þegar stýrisvélin bilaði skyndilega (allir ómeiddir) og staðnæmdist hangandi á skurðbakka, höktum lúshægt í Víðigerði á bíl sem lét eiginlega ekki að stjórn (og það var hálka) hittum einstaklega hjálpsama Húnvetninga, komum á lánsbíl suður ...
Nóg um það. Hér er staðan í smekkkeppninni og baráttan er afar hörð í einum flokknum (formannskosningin í Sjálfstæðisflokknum er sko ekki sú eina sem máli skiptir í dag), heldur ójafnari í hinum:
Naut 14
Hreindýr 15
Gæs 19
Svartfugl 8
Hörpuskel 9
Humar 19
Silungur 22
Þorskur 7
Nýr formaður Sjálfstæðisflokksins kemst á hreint á eftir. En hér verður hægt að greiða atkvæði til fyrramáls og margt getur breyst.