Prófkjöri að ljúka ...
Staðan í síðustu lotu smekkkeppninnar - hér hefur svínið heldur náð að rétta hlut sinn, þó virðst öndin hafa örugga forystu. Folaldakjöt rétt marði kálfakjöt í annarri lotu en þegar kemur að fullorðnu gripunum er annað uppi á teningnum. En það er hægt að greiða atkvæði fram til miðnættis ...
Önd 17
Svín 8
Naut 23
Hross 2
Túnfiskur 19
Síld 5
Blálanga 5
Rauðspretta 14
Ég var reyndar svolítið í vandræðum með að velja í þessa síðustu lotu svo að kannski er þetta dálítið ósamstætt. Ætli spennan komi ekki í næstu umferð, þegar sigurvegurum verður att saman?