Staðan í smekkkeppninni miklu
Staðan í smekkkeppninni er þessi - en það er enn hægt að greiða atkvæði um þetta ljúfmeti til morguns, þá hefst næsta lota fyrstu umferðar:
Hreindýr 18
Dádýr 6
Kjúklingur 20
Kalkúni 3
Humar 20
Rækjur 4
Skötuselur 16
Steinbítur 5
Ekki hægt að segja að staðan sé nokkurs staðar tvísýn. Hreindýr og dádýr voru frekar jöfn framan af en svo sótti hreindýrið í sig veðrið og hefur nú örugga forystu. Eiginlega kemur það mér mest á óvart hvað kjúklingur hefur öruggt forskot á kalkúna, hélt að það yrði allavega mjórra á mununum. Endilega takið þátt!