Ömmur á Facebook
Barnabarnið kommentaði á Fésbókarmyndina mína og sagði ,,hahaha þú ert asnalegt".
Það er ekki borin mikil virðing fyrir ellinni á þeim bænum, ónei.
Var ég ekki að lesa einhvers staðar alveg nýlega áhyggjur einhvers yfir að bráðum yrðu ömmurnar komnar á Facebook og birtu myndir sem fengju barnabörnin til að skammast sín alveg oní hrúgu?
Jæja, ég var allavega á undan barnabarninu.