Kynvissa
Ég fékk póst áðan frá Gallup. Svona viðhorfskönnun þar sem maður á að merkja við möguleika. Allt í lagi með það.
Fyrsta spurningin snerist um það af hvaða kyni ég væri. Möguleikarnir voru:
Kona
Karl
Vil ekki svara
Veit ekki
Ég held fjandakornið að ef maður veit ekki af hvaða kyni maður er geti maður varla verið marktækur um annað.
Sveimérþá.