Ég á afmæli í dag ...
Nei, reyndar ekki, en ég er að halda upp á að það eru 22 ár síðan ég hóf störf í útgáfubransanum; byrjaði að vinna hjá Iðunni 11. september 1986. Svo að ég mætti með köku í morgun. Gráfíkjueplaköku.
Þegar ég hafði unnið í 15 ár samfleytt hjá Iðunni mætti ég með nokkrar tertur í vinnuna. Ákvað að bjóða upp á þær með morgunkaffinu. Rétt eftir hádegið kom í ljós að það hafði verið hárrétt ákvörðun; það var ekki alveg stemmning fyrir tertum í síðdegiskaffinu 11. sept. 2001.