Ekta ólétta
Ekki það að mér sé ekki hundsama hvort hin 17 ára Bristol Palin er ólétt eða jafnvel tvíólétt eða sjái nokkra ástæðu til að draga það inn í forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, en ég hjó samt eftir fréttafyrirsögn sem ég sá á Fox áðan:
,,Family woes prove Alaska´s governor is authentic."
Einmitt. Mamma mín er örugglega ekta líka því ég eignaðist sko barn 17 ára.
Spurning hver fyrirsögnin hefði verið ef Obama ætti ólétta 17 ára dóttur.