Löng menningarnótt í Friðarhúsi
Nú er ég að velta einu fyrir mér:
Ætli sé dúndrandi menningarnæturdagskrá hjá nágrönnum mínum í Friðarhúsi alla vikuna og jafnvel lengur?
Eða ætli auglýsingaskiltið á horninu á Laugavegi og Snorrabraut, þar sem sagt er frá dagskránni og bent á að Friðarhúsið sé ekki nema 120 m frá Laugavegi, hafi einfaldlega gleymst þarna á laugardagskvöldið og verði þar um ókomna tíð?