Heimsreisan okkar
Hvernig skilgreinið þið heimsreisu?
Ef það er heimsreisa að fara frá Yucatán í Mexíkó til Los Angeles, þá er spurning hvort við barnabarnið vorum ekki bara í heimsreisu í apríl þegar við ferðuðumst frá Jerez yfir til Marokkó og þar þvers og kruss um Fez og Marrakesh og Casablanca og Tangier og aftur til Andalúsíu - jú, sveimérþá ef þetta var ekki bara heimsreisa. Við fórum jú líka um heil tvö lönd og yfir í aðra heimsálfu ...