Bangsasnúðar
Ég er nærri viss um að þessir blessaðir ísbirnir eru á leið í Sauðárkróksbakarí að fá sér súkkulaðisnúða.
Þessi fyrri var allavega grænmetisæta, það fannst bara mosi og gras þegar farið var innan í hann. Spurning með þennan sem er í æðarvarpinu á Hrauni, hann étur þó egg - en það er nú bara af því að hann er hvergi nálægt bakaríinu.
En nú fá kannski þeir sem halda að það sé minnsta mál í heimi að fanga ísbjörn og flytja hann norður í rassgat að spreyta sig. Reynandi að lokka bangsa með snúðum úr bakaríinu.