Útsýnið selur
Svei mér þá ef er ekki að fjölga íbúum í nýja húsinu hér á móti, sem ég sé þegar ég lít yfir tölvuskjáinn. Allavega virðist einhver hreyfing vera í sumum íbúðum sem stóðu auðar síðast þegar ég minntist á þetta hér. Og í góða veðrinu á 1. maí sá ég meira að segja lítt klædda unga myndarlega karlmenn á svölum í allavega tveimur íbúðum.
Og skyndilega rennur upp fyrir mér að þetta gerist um leið og ég fjarlægi draslið sem er búið að vera á svölunum hjá mér síðan í fyrrasumar. Það er semsagt ég sem hef komið í veg fyrir að íbúðirnar seldust af því að þegar fólk kemur að skoða þarna og lítur út um stóru flottu stofugluggana sér það beint yfir á svalirnar hjá mér, sem voru semsagt hálffullar af drasli.
En nú er draslið farið og þetta fína Weber-grill komið í staðinn og það er eins og við manninn mælt, íbúðirnar renna út eins og bráðið smjör.
Hlýtur að vera skýringin.
Ég fæ aftur á móti að njóta þess að horfa á lítt klæddu ungu myndarlegu nágrannana. Kannski ekki í dag reyndar, en næst þegar sólin skín. Hlyti að hækka mína íbúð í verði ef ég ætlaði að selja. (Veit samt ekki með þennan allsbera.)