Ömmustílbrot
Hérna tala ég um að fara að verða ömmulegri og svo er það fyrsta sem ég fæ að heyra í vinnunni komment um hvað nýja klippingin mín sé pönkuð.
Ég er samt miklu frekar hippi en pönkari í mér (reyndar ætti ég líklega að reiknast til diskótímabilsins en það var aldrei alveg minn stíll og ég veit heldur ekki hvernig diskóömmur eru - sennilega voða flottar og smart) en hippaömmur eru með sítt grátt hár eða fléttur. Ég er búin með það tímabil. En fötin mín eru ábyggilega meira í hippa- en pönkstílnum.
Jæja, best að halda áfram við kynlífshandbókarprófarkalesturinn. Það er reyndar ekkert sérlega ömmulegt heldur.