(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

9.3.08

Ég þoli ekki klósetthreinsiefnaauglýsingar ...

Er rosalega mikill peningur í klósetthreinsiefnabransanum hér á landi? Ég spyr nú bara af því að mér finnst varla koma svo sjónvarpsauglýsingatími að maður sé ekki neyddur til að horfa á eitthvert klósettógeð. Ætli allar þessar auglýsingar borgi sig?

Þær eru allavega ekki að verka þannig á mig að ég rjúki upp til handa og fóta og fylli allt af mismunandi klósetthreinsiefnum og stöffi. Reyndar keypti ég einu sinni þetta þarna langa hvaðþaðnúheitir sem mér skildist að ætti að vera svo maður þyrfti ekki alltaf að vera að færa klósetthreinsistöffið. (Annars skil ég ekki af hverju blessuð konan sem er alltaf að góna oní klósettið sitt og stynja notar ekki bara klósettbursta.)

Það sturtaðist niður í klósettið eftir þrjú skipti, sat þar fast og meiri háttar mál að ná því þaðan.

|