Kúruteppi og bláir endar
Gærkvöldið fór í að klára kúruteppi Sauðargærunnar. Ja, eða reyndar var það ekki fyrr en í nótt sem ég lauk við kögrið. Er samt enn að velta fyrir mér hvort ég eigi að setja kögur á endana líka. Það var að vísu mælst til þess að endarnir á teppinu yrðu bláir (uppáhaldslitur) og það er ekki nóg eftir af bláa garninu í kögur svo að það gengur eiginlega ekki nema kaupa meira.
Best að drengurinn fái að ráða því.