Matarspenna
Ég er að reyna að leggja lokahönd á smáerindi um mat (surprise!) sem ég glæptist til að lofa að flytja á Vetrarhátíðaruppákomu á morgun. Ég er semsagt öll að koma til. Er samt enn með einhvern kverkaskít og veit ekkert hvort ég endist til að flytja heilt erindi; kannski þarf ég að sigta út stað í miðjunni þar sem ég get endað. Rétt eins og þurfti að gera með suma bandarísku sjónvarpsþættina núna í handritshöfundaverkfallinu, breyta því sem átti bara að vera venjulegur þáttur í miðri seríu í æsispennandi cliffhanger.
Nema það gengur víst ekki að enda fyrirlestur um matarmenningu þannig. Ekki með allt í lausu lofti, er það?
Jæja, vona bara það besta