Ammæli
Þennan dag árið 1981 eignuðumst við George Best son. Ekki saman reyndar, en Calum Best og litli drengurinn minn eru báðir 27 ára í dag. Má kannski segja að fótboltadrengurinn hafi náð lengra í lífinu því að hann hefur sett á markað rakspíra með nafninu sínu. Það er enn ekki til neinn rakspíri sem heitir Hjalti.
Reyndar skilst mér að góðgerðastofnanir í London hafi lent í stórvandræðum eftir jólin vegna þess að það streymdu til þeirra Calum-glös í lange baner; óvinsælasta jólagjöfin í ár, sagði einhver.
Zsa Zsa Gabor á líka afmæli í dag en hún er nú töluvert eldri, blessunin.