Ausukvörtunin
Hmpfh, ég var ekki einu sinni byrjuð að sjóða baunirnar - það var ekki einu sinni búið að kaupa þær - þegar fyrsta kvörtunin kom:
-Þú gleymdir að segja frá einu aðalumkvörtunarefninu!
Ókei, ókei, það er svona:
* Þessi ausa er of stór.
En ég er búin að sjá við því. Í ár verður baununum ausið með meðalstórri skrautlegri amerískri silfurplettausu þar sem ártalið 1902 er grafið öðrum megin á skaftið og hinum megin (framaná) stendur stórum stöfum Mama. Svo það á enginn að velkjast í vafa um hver ræður hér.
Það verður örugglega kvartað yfir að hún sé of lítil.