Herinn bregst ekki
Ég reifaði tillögu mína um fatapeninga mér til handa í kaffitímanum í dag. Hún hlaut ekki betri undirtektir en svo að ég ákvað að koma við á fatamarkaði Hjálpræðishersins á heimleiðinni. Þar fann ég fínustu peysu og blússu sem ég keypti á 1500 krónur samtals. Og svo kom ég við í Tiger og keypti tvenn lesgleraugu á 200 krónur stykkið.
Verst að ég skuli ekki vera í pólitík, það væri hægt að reka framboð mitt með svo litlum tilkostnaði.