Einnar konu náttfatapartí og bollur
Á svona morgni þarf maður ekki að draga frá glugganum - reyndar ekki einu sinni að opna augun - til að hugsa ,,mikið er gott að ég þarf ekki út fyrir hússins dyr í dag". Enda er ég enn á náttfötunum og alveg óvíst að það breytist mikið þegar líður á daginn.
Reyndar kláruðust espressobaunirnar mínar í gærkvöldi en það eru til önnur köff. Vilcabamba frá Ekvador meðal annars, sem ég er einmitt að drekka núna. Ágætt að hafa sambönd í kaffiheiminum. Það er til afgangur af nautasteikinni frá í gær, sem var alveg hreint ágæt, svo ekki þarf ég að kaupa í matinn. Eina ástæðan sem ég hef til að klæða mig yfirleitt er að fara niður í forstofu eftir Fréttablaðinu og það er alltof mikið vesen. (Ég gæti auðvitað farið á náttbuxunum og sloppnum en þá er eins víst að ég mundi læsa mig úti úr íbúðinni - annað eins hefur gerst.) Ef mig langar mikið að lesa Fréttablaðið á eftir get ég bara lesið það á netinu.
Er veðrið annars strax farið að skána eitthvað? Það heyrist allavega minna í því - en ég sé svosem engan mun þegar ég horfi út, sama drullan.
Annars var ég ekkert búin að átta mig á hvað tíminn líður hratt, var bent á það í gær að bolludagur er á næsta leiti (að vísu óvenju snemma í ár) - sem þýðir að mitt árlega bollukaffi verður líklega á sunnudaginn, nema það rekist á við afmælisveisluna hans Odds frænda míns - ef svo er verður það líklega (merkilegt nokk) haft á sjálfan bolludaginn. Bakarísstarfskraftarnir sem voru hér í mat í gærkvöldi eru að vinna á sunnudaginn og höfðu af því áhyggjur að þær myndu missa af bollukaffinu - eða allavega að bollurnar yrðu búnar þegar þær kæmu. Ég benti þeim á að þær yrðu á fullu að afgreiða bollur allan daginn og yrðu komnar með bolluógeð en þær sögðu að munurinn væri sá að mínar bollur væru góðar.
Sem er náttúrlega alveg rétt.