Nöldur dagsins
Mjög ofarlega á ,,þoli ekki" listanum mínum (sem er ekkert voðalega langur nema þegar ég er í vondu skapi) er fólk sem leggur bílum á gangstéttir sem ég þarf að labba um.
Ég þoli það barasta ekki. Til dæmis núna áðan hafði einhver lagt bíl á Grettisgötunni inn á hálfa gangstéttina. Nú er gangstéttin sosum það breið að ég komst alveg framhjá - en bílnum var lagt yfir auða hlutann af gangstéttinni. Ég þurfti að labba á hála partinum og skrikaði auðvitað fótur. Fann illa fyrir því í hnénu og munaði engu að ég dytti.
Fyrir nokkrum dögum þurfti ég að komast framhjá bíl sem var lagt inn á gangstéttina og svo nálægt tröppum nágrannans að það var ekki vinnandi vegur - allavega ekki fyrir fótstirða gamla konu eins og mig - að komast þar framhjá. Ég gat valið um að príla upp á tröppurnar eða krækja út á götu.
Í báðum tilvikum er ég viss um að ekki hefði þurft að fara langt til að finna lögleg stæði. En nei, um að gera að troða bílnum hálfum upp á gangstétt og valda öðrum óþægindum til að þurfa ekki að labba nokkra tugi metra sjálfur ...
Og þar sem ég geng yfirleitt í og úr vinnu, þá lendi ég ansi oft í því að þurfa að troða mér framhjá bílum eða krækja út á götu framhjá bílum sem lagt er ólöglega. Og ég þoli ekki svoleiðis bílstjóra. Megi þeir aldrei þrífast.
(Og áður en einhver spyr: Nei, ég hef sjálf alveg örugglega aldrei nokkurn tíma lagt bíl ólöglega. Það get ég fullyrt með 100% vissu.)