Gúrúið í stuði
Ég er að ofnsteikja nokkra skammta af kjötbollum sem hver um sig þarf um 15 mínútur í ofni. Áðan setti ég - eftir að hafa gert hlé á steikingunni - nýja kjötbolluplötu í ofninn, stillti ofnklukkuna og fór að sjóða linsubaunir og kjúklingalæri og gera ídýfur og fleira á meðan bollurnar steiktust. Svo hringdi klukkan, ég opnaði ofninn - en það kom engin hitabylgja á móti mér og bollurnar voru undarlega bleikar.
Ég hafði gleymt að kveikja á ofninum.
Svo er ég að þykjast geta ráðlagt fólki um eldamennsku.