Gleðileg jól
Hangikjötsilmur, rauðkálslykt, gufur af andasósu, snúningshljóð í ísvélinni, ég að bíða eftir að humarinn þiðni nægilega til að ég geti brotið skeljarnar fyrir súpuna, búið að skúra gólfin eftir Þorláksmessuboðið, búið að skipta á rúminu, jólafreyðibaðið í undirbúningi - jú, líklega eru bara að koma jól.
Gleðileg jól, öllsömul.