Sumir dagar
Það koma rólegir dagar í vinnunni.
Og svo koma dagar þar sem öll verkefnin sem maður er með á sinni könnu og nokkur í viðbót koma samtímis á borðið - og allt á að fara í prentun í þessari viku. Eða svo gott sem. Og allt blandast saman í kollinum, ást og fangelsi og skáld og flugvélar og listmálarar og allt hitt.
En ég er búin að koma flestu frá í bili, þannig að ég er farin heim að passa barnabarnið. Þetta yngra sko, ekki forsetaframbjóðandann.