Kvöldinu bjargað
Hér sat ég og langaði í eitthvert góðgæti en nennti ekki út - og þá man ég allt í einu að ég á svolítið af rúsínum sem búnar eru að liggja í Pedro Ximenes í skál á eldhúsbekknum heila viku. Og soga það allt í sig og tútna út. Og smávegis rjómaís.
Betra gerist það varla.