Ekki alveg í sambandi ...
Típísk ég sko:
Ljósmyndari númer eitt kom áðan, ég stillti mér upp með myndasvipinn minn, einkasyninum til aðhláturs (ég veit, en ég get í alvöru ekkert að þessu gert, þessi svipur bara kemur á mig þegar ég er mynduð), passaði að hafa viðeigandi bók áberandi á myndinni, allt í fína með það ... og svo þegar ljósmyndarinn var á leið út úr dyrunum mundi ég allt í einu að þessi ljósmyndari átti ekkert að mynda mig út af bókinni, heldur bara út af jólahlaðborðsumfjöllun. Það er hinn sem kemur á eftir sem á að mynda mig með bókina ... en hann sneri við og tók af mér nokkrar myndir í viðbót.
Eins og ég sagði. Það tekur á að vera seleb.
Og svo gleymdi ég að klippa hökuhárin.