Ritstjórnarraunir
Ég rak áðan augun í athugasemd frá höfundi handritsins sem ég er að böðlast í sem varð til þess að það rifjaðist upp fyrir mér þegar ég var á Iðunni og sat yfir ákveðnum ágætum manni við umfangsmiklar leiðréttingar, daginn áður en bókin sem hann var að skrifa varð að fara í prentsmiðju, og hann sagði allt í einu:
-Já, heyrðu, hér þarf ég eiginlega að skrifa nýjan kafla.