Steikur, barferðir og þvottar
Þetta reddaðist nú allt með steikina og útvarpsviðtalið. Steikin var í fínu formi þegar ég kom aftur og hafði passað sig bara ljómandi vel sjálf. Eins og þægar og góðar steikur eiga að gera.
Eftir steikarmyndatökuna og fleira var ég í skapi til að fara á Vínbarinn. Dró einkasoninn með mér og bauð honum svo upp á sushi á Ósushi á eftir. Ljómandi gott bara.
Nú erum við að fara á Grettisgötuna að þvo þvott og baða einkasoninn. Það er að segja, ég þvæ þvottinn, drengurinn baðar sig sjálfur. Það er nefnilega ekki enn komið baðker í íbúðina á Kárastígnum.