Pepperónípítsusúpa
Hmm. Sennilega hef ég ekki valið réttu helgina til að leggjast í ferðalög út á land. Jæja, sjáum til á morgun. Mogginn segir að það eigi að létta til; ekki lýgur hann.
Ég rakst áðan á uppskrift að ,,chicken fried steak ice cream". Þar er komin matargerðartilraun sem mig langar bara ekkert að spreyta mig á. Beikon-og-eggjaís, allt í lagi. En það eru takmörk.
Mér líst skár á uppskriftina að pepperónípítsusúpu, sem ég fann við sama tækifæri. Gæti jafnvel virkað. Virtist meira að segja alveg þokkalega girnileg. Akkúrat það sem mann vantar í svona veðri.
Kannski helli ég mér út í matargerðartilraunir á þessum nótum þegar jólablað Bístrós er farið í prent. Æi, nei, þá er það Lundúnaferðin sem ég þurfti að fresta. En í desember ...
Eða kannski ekki.