Farin
Ég vissi að Mogginn mundi ekki klikka. Ég er semsagt að fara úr bænum af því að mér var boðið í mat; kem aftur á morgun.
Svo minni ég á að í dag eru fjörutíu ár síðan hann Gísli Egill fæddist norður á Kópaskeri. (Ég er nýbúin að uppgötva þetta með Kópasker, þess vegna get ég ekki sleppt því að nefna það.)
Enn og aftur til hamingju, Gísli minn. Í tilefni dagsins lofa ég að bögga þig ekki meira í dag (en það er nú bara af því að ég er að fara úr bænum).
Ég lofa líka að reyna að verða ekki veðurteppt.