(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

7.5.06

Sólgleraugnasparnaður

Æi, hvað er ég annars að setja fyrir mig verð á einhverjum þvottavélum?

Ég var að fletta blaði áðan og sá þar einhverja umfjöllun um sólgleraugnatísku. Og nokkur sýnishorn af tískusólgleraugum með. Engin þeirra kostuðu undir 7000 krónum og þau dýrustu kostuðu tæp 40.000. Og ég var að horfa á þetta í gegnum glæsilegu sólgleraugun sem ég keypti í Tiger í vikunni og kostuðu tvöhundruðkall og ég er bara þokkalega ánægð með. Þau voru heldur ekkert svo ólík gleraugunum í 15-20.000 króna verðflokknum, sýndist mér ...

Þannig að ókei, með því að vera hagsýn í sólgleraugnakaupum er ég búin að spara mér sirka 39.790 krónur. Maður fær alveg þvottavél fyrir þann pening.

|