Þurru buxurnar
Í gærkvöldi setti ég buxur í þurrkarann rétt áður en ég fór að sofa og stillti hann á 10 mínútur.
Þegar ég vaknaði sex tímum seinna var þurrkarinn enn í gangi. Enn stilltur á 10 mínútur. Nú á ég mjööööög þurrar buxur.
Jæja, það kviknaði allavega ekki í. En ég er hrædd um að ég fari hvorki að sofa né að heiman með þurrkarann í gangi hér eftir.