Skylmingastúlkan tengdadóttir mín er 25 ára í dag og ég óska henni hjartanlega til hamingju. Og Hildigunni auðvitað, sem á líka afmæli. Mér finnst endilega að ég þekki fleiri afmælisbörn en man ómögulega hver ... jæja, þið fáið allavega hamingjuóskir líka ...
Eftir alla eldamennskuna í dag held ég að ég sleppi kvöldmatnum. Nema það er náttúrlega þessi opna hvítvínsflaska ...