(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

13.3.06

Snúningsteinninn fannst en reyndist svo bilaður þegar átti að fara að grilla kjúklinginn. Þar sem þá var búið að hantéra hann miðað við grillsteikingu var ákveðið að sleppa taginunni en ofnsteikja kjúklinginn í staðinn. Það féll í góðan jarðveg hjá matargestinum.

Það er verið að plana fjölskylduferð til Kaupmannahafnar í sumar. Sauðargæran er afskaplega spenntur fyrir því að fara í dýragarðinn og sjá meðal annars nafna sinn (eru ekki örugglega ennþá úlfar í dýragarðinum í Kaupmannahöfn?).

Systir hans varð aftur á móti mjög spennt þegar hún sá þetta hér (ætli þetta verði tilbúið í sumar?). Ég held ég afþakki ...

|