Margir kannast við Emotion Eric. Og margir sem hafa lesið bloggið mitt lengi ættu að kannast við litla kínverska hommann hann Ernie, ég hef ekki svo sjaldan vísað á hann.
Ég vissi hins vegar ekki fyrr en núna að Ernie og Eric eru vinir. Og þeir fóru saman í siglingu með skemmtiferðaskipi til Mexíkó á dögunum. Spiluðu bingó, dönsuðu við gamlar konur og fóru í reiðtúr á ströndinni. Hilarity ensues, eins og Ernie segir.
Ég hefði viljað vera fluga á vegg í þessu ferðalagi.