Dóttursonurinn var nappaður (af foreldrum sínum) í Ríkinu á föstudaginn þegar hann gerði heiðarlega tilraun til að verða sér úti um flösku af íslensku brennivíni. Efnilegur.
Ég hringdi heim til hans í gær og þegar ég bað um að fá að tala við mömmu hans laug hann því blákalt að hún væri í útlöndum. Hann stefnir semsagt í að verða bæði hraðlyginn og drykkfelldur. Og flagari, náttúrlega.