Ég komst að því í morgun, þegar ég var að velta því fyrir mér hvort ekki væri kominn tími til þess vegna hækkandi aldurs að ég færi að nota hrukkukremið sem Boltastelpan seldi mér um daginn í einhverjum Konupakka, að þetta er víst bara handhrukkukrem. Mér er nokk sama þótt ég verði hrukkótt á höndunum svo að ég veit nú ekki hvað ég verð dugleg að nota það.
Verð víst að fela aldurinn með einhverju öðru móti.