Ég hringdi í einkasoninn og spurði hvers vegna í ósköpunum hann væri ekki búinn að koma eða hringja og grennslast eftir heilsu vesællar móður sinnar, sem hann hefði jú vitað að væri að fara í stórháskalega aðgerð á báðum augum.
-Kva, ég las á blogginu þínu að það væri allt í lagi með þig, sagði hann.
Hér hefði ég nú komið með einhverja prédikun ef ég væri ekki nákvæmlega svona sjálf.