Við Sauðargæran erum að ræða hættuna á því að Boltastelpan fari í jólaköttinn, þar sem enn hafa ekki fundist jólaföt á hana.
Sauðargæran: -En amma, ég veit á hvaða fjalli jólakötturinn á heima og ég get bara farið þangað.
Amman: -Og bjargað systur þinni?
Sauðargæran: -Já, ég get sko rotað jólaköttinn.
Amman: -Vá, með hverju?
Sauðargæran: -Bara með hendinni (sýnir hnefann).
Amman: -Ertu svona svakalega sterkur?
Sauðargæran: -Já, en það er allt í lagi. Ég ætla aldrei að rota þig, amma mín.
Gott að vita það.