Best að taka jólastatus:
Jólagjafakaupum næstum lokið. Allavega búið að ákveða allt.
Jólabakstur ekki hafinn. Áætlaður eftir helgi, jafnvel byrjað á morgun.
Jólamaturinn ákveðinn (nema forréttur) og búið að kaupa aðalréttinn.
Jólavínið var keypt í Búrgundarferðinni í nóvember.
Jólatiltekt ... já. Work in progress.
Jólatréð komið á svalirnar.
Jólaskraut að tínast á sinn stað smátt og smátt.
Jólakort ... þessi þrjú eða fimm sem ég sendi verða skrifuð á morgun. Kannski.
Jólaskapið er á leiðinni.
Og heil vika til jóla. Ég er í góðum málum ...