-Þetta er stórt kjöt, sagði Sauðargæran áðan þegar ég var að setja tólf kílóa svínslærið í pottinn sem var keyptur sérstaklega til að sjóða það í á Hagkaupsútsölunni í sumar (þetta er steikarpottur sem er svo stór að hann kemst ekki í ofninn minn, enda stóð aldrei til að hann færi þangað - það komast heilir sex lítrar af vatni í hann með skinkunni en síðast þegar ég var með svona stóra skinku gat ég ómögulega komið nema tveimur lítrum af vatni í pottinn sem ég notaði þá, hún fyllti svo gjörsamlega út í hann.
Kryddpæklaða lambalærið verður svo steikt í fyrramálið og þá þarf ég líka að steikja lax, baka brauð og fleira. Í kvöld þarf ég aftur á móti að gera kjúklingalifrarkæfu, sjóða nautatungu, búa til maríneraðan hörpudisk og gera sitthvað fleira. Já, og baka einhverjar kökur. Allavega klumbinn, eins og Boltastelpan kallaði jóladrumbinn sem ég set alltaf á Þorláksmessuborðið og hún skreytir með Mjallhvíti og dvergunum átta. (Nei, ég veit ekki af hverju þeir eru átta.)
Sumt er svo tilbúið - eða svo gott sem - til dæmis hráa tvíreykta hangikjötið, Stiltonosturinn, panettonebrauðið og fleira sem ég hef verið að sanka að mér að undanförnu.
Já, og það eru allir velkomnir.