Nei, það er líklega alveg satt. Ég hef allt sem mig vantar í kvöld allavega.
Tja, vantar kannski gott súkkulaði til að narta í á eftir. En það sleppur. Svo keypti ég ágætis Selebeskaffi í dag og ef mig langar í eitthvað með því er allavega til koníak.
Ef það væri nú bara eitthvað almennilegt í sjónvarpinu. En ég er svosem ekki búin að athuga allar þessar sextíu stöðvar svo að það er ekki öll von úti.
Og líklega á ég einhvers staðar disk með Red Dwarf-þáttum sem ég er búin að vera að treina mér. Eða eina eða tvær ólesnar glæpasögur.
Maður þarf ekkert endilega að vera suður í Búrgund til að hafa það gott.