Í hvaða bók (og þetta er ekki getraun) er aftur pláneta sem eingöngu er byggð týndum bírópennum?
Ég held ég sé búin að sækja mér nýjan penna fram í afgreiðslu á hverjum vinnudegi síðustu viku. Eða tvær. Ég þori ekki að fara oftar í bili og er farin að stela pennum frá vinnufélögunum. Sennilega pennum sem ég hef gleymt inni hjá þeim in the first place.
Nema þeir lendi allir á bírópennaplánetunni. Þar sem Lazlo Biro er væntanlega yfirguðinn.