Ég er löngu komin yfir mitt árlega súkkulaðiógeð og sit hér og borða konfekt. Sykurlaust og með sykri á víxl.
Sykurkonfektið er nú betra. Hitt er satt að segja frekar vont.
En maður verður nú að leggja ýmislegt á sig fyrir vinnuna. Kunna skil á mismunandi bragði og svona.
Sykurkonfektið er örugglega bráðóhollt og heilsuspillandi. En maður verður nú að leggja ýmislegt á sig fyrir vinnuna ...