Ég veit ekki hvort er eitthvað að draga úr kökubakstursáhuga drengsins en þessa stundina hefur hann eingöngu áhuga á kökudósasafninu mínu, sem hann er búinn að breyta í trommusett.
Hann gengur rösklega fram í trommuslætti eins og öðrum verkum.
Annars á ég ágætis kökudósasafn og þar á meðal er ein dós sem ýmsir hafa ágirnd á. Allt karlmenn. Þetta er nefnilega dós með mynd af danska fótboltalandsliðinu, merkt Mexico '86. Hinn merkasti gripur.