Ég fékk bréf áðan frá University of California Press, með áminningu um að áskriftin mín að Gastronomica væri að renna út. Sem er ekki í frásögur færandi nema að áminningin er dagsett í júlí og bréfið hefur verið sent til Ísraels - er stimplað ,,Not Israel" í bak og fyrir og svo hefur einhver vitað hvar í heiminum Reykjavík er og krotað Iceland á bréfið.
Þegar ég fer að hugsa málið er ég ekkert viss um að ég hafi fengið síðustu tölublöðin af tímaritinu - en það kemur bara fjórum sinnum á ári svo að ég er reyndar ekki alveg viss. Kannski þau hafi hafnað í Ísrael líka.
Eins gott að þetta var ekki mjög áríðandi bréf, allavega.