Jæja, þá er blaðið farið í prentsmiðju. Two down, one to go ... En reyndar tekur við annað blað strax eftir mánaðamót (þyrfti reyndar að vera fyrr), og önnur bók. Og fleira í þeim dúr.
Og nú er best að ég vitni í Prédikarann - ég er nú ekki manneskja sem gerir mikið af því að vitna í Biblíuna en þessi tilvitnun hékk alltaf uppi á vegg hjá mér þegar ég var í turnherberginu hjá Iðunni sællar minningar: ,,Að taka saman margar bækur, á því er enginn endir, og mikil bókiðn þreytir líkamann."
Þetta átti nú ekki síst við þegar ég var með Jón Óttar þar í gíslingu.