Ég var að vinna heima til tvö í nótt og var svo mætt í vinnuna upp úr átta í morgun. Kom heim um sexleytið og uppgötvaði að ég var of þreytt til að elda, var svöng en langaði samt ekki í neitt. Rölti í bæinn til að leita mér að einhverju að borða. Tæpum klukkutíma síðar var ég á heimleið, enn jafnsvöng en fjórtán matreiðslubókum ríkari.
Svo að ég kom við í Drekanum hér niðri á horni og keypti mér pylsu og kók. Og þarna sat svo matargúrúið með pylsu, kók og fjórtán matreiðslubækur.
Ég er ekki í lagi.