Ég var að fá nýuppteknar kartöflur inn á borð til mín ,,teknar upp í Þykkvabænum um rismál í morgun" stendur í bréfinu sem fylgir þeim.
Mmmm, ég hlakka svo til að borða þær.
Mér skilst að kartöflubændur ætli að reyna að bjóða upp á nýuppteknar kartöflur - og þá meina ég alveg nýuppteknar - á hverjum degi fram í ágúst. Mér líst sannarlega vel á það framtak.