Ég var eitthvað verulega utan við mig í morgun. Fór niður að sækja Fréttablaðið, hitaði mér kaffi, smurði heimabakað brauð, settist niður, byrjaði að lesa blaðið og var komin aftur í minningargreinarnar - ha, minningargreinar? - þegar ég áttaði mig á því að þetta var ekkert Fréttablaðið, heldur hafði ég stolið Mogganum af nágrannanum.