Við efnafræðistúdentinn vorum að horfa á aðþrengdu eiginkonurnar og þegar þátturinn var búinn skipti ég yfir á Skjá 1. Þar var Jay Leno og Roseanne Barr sat í stólnum hjá honum. (Meira hvað sú manneskja hefur annars breyst.)
Móðirin: -Skrítinn texti á bolnum hennar. Protect your elf from Hollywood.
Efnafræðistúdentinn: -Sérðu ekki S-ið, manneskja? Yourself. Protect yourself from Hollywood.
Móðirin: -Ó. S-ið er í svo asnalegum skugga. Líklega er það brjóstaskoran.
Efnafræðistúdentinn: -Ekki þar fyrir, ef ég ætti álf mundi ég sannarlega prótekta hann fyrir hverju sem er.